Átak lífs míns

get ég þetta ?

27.12.2008 00:51:48 / laralus

Góða K

Góða kvöldið !

Jólin jólin jólin......
Það eru smákökur, konfekt, kjöt, nammi, gos og hreyfingarleysi sem einkennir jólin mín í ár. ég treð öllu upp í mig, vitandi að þetta er alveg ferlega óhollt og að ég ætti að skammast mín á þessu ofáti - en samt sem áður bæli ég niður íþróttaálfin í sjálfri mér og drep sjálfsálit mitt smátt og smátt! En nú verður þetta að stoppa - öll þessi óhollusta gerir mig neikvæða, pirraða og það sem verst er dapra.
Ég er búin að sitja í brjáluðu skapi eftir að hafa troðið í mig meir og meir og meir alls kyns mat og hreyfingarleysi - ég eignaðist barn fyrr 8 mánuðum og er ferlega leið á allri þessarri aukahúð sem liggur á maga minum - tóm blaðra ! ég er einsog kengúra....
Satt að segja þá er það nu ekki mörg kilo sem ég þarf að losa mig en þess í stað er mikil neikvæðni sem er farið að einkenna hugsanagang minn......
ég er með 10 aukakíló á mér sem ég ja hata :) þess vegna hef ég ákveðið að opna svona átaksbloggsíðu til að leita mér stuðnings og fylgjast með hvað aðrar eru að gera til að öðlast betri líf.
Keypti mér kort í ræktinni áðan á netinu og verð nú bara að segja að mér fannst ég nú bara grennast aðeins við þessi kaup mín og brosti við unnum áfanga :) nú er næsta challenge að mæta !
Jæja ætla að hafa þeta nóg í bili og fara browsa eftir stúlkum í átaki :) Sjáumst og endilega commenta þó það sé ekki nema að segja "hæ".

» 2 hafa sagt sína skoðun

27.12.2008 00:35:43 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 855
Gamalt blogg