Góða kvöldið !
Jólin jólin jólin......
Það eru smákökur, konfekt, kjöt, nammi, gos og hreyfingarleysi sem einkennir jólin mín í ár. ég treð öllu upp í mig, vitandi að þetta er alveg ferlega óhollt og að ég ætti að skammast mín á þessu ofáti - en samt sem áður bæli ég niður íþróttaálfin í sjálfri mér og drep sjálfsálit mitt smátt og smátt! En nú verður þetta að stoppa - öll þessi óhollusta gerir mig neikvæða, pirraða og það sem verst er dapra.
Ég er búin að sitja í brjáluðu skapi eftir að hafa troðið í mig meir og meir og meir alls kyns mat og hreyfingarleysi - ég eignaðist barn fyrr 8 mánuðum og er ferlega leið á allri þessarri aukahúð sem liggur á maga minum - tóm blaðra ! ég er einsog kengúra....
Satt að segja þá er það nu ekki mörg kilo sem ég þarf að losa mig en þess í stað er mikil neikvæðni sem er farið að einkenna hugsanagang minn......
ég er með 10 aukakíló á mér sem ég ja hata

þess vegna hef ég ákveðið að opna svona átaksbloggsíðu til að leita mér stuðnings og fylgjast með hvað aðrar eru að gera til að öðlast betri líf.
Keypti mér kort í ræktinni áðan á netinu og verð nú bara að segja að mér fannst ég nú bara grennast aðeins við þessi kaup mín og brosti við unnum áfanga

nú er næsta challenge að mæta !
Jæja ætla að hafa þeta nóg í bili og fara browsa eftir stúlkum í átaki

Sjáumst og endilega commenta þó það sé ekki nema að segja "hæ".